tag:blogger.com,1999:blog-30253038796068704052024-03-14T07:45:37.931+01:00Í AmsturdammiÍ Amsturdammihttp://www.blogger.com/profile/15498099925631960885noreply@blogger.comBlogger144125tag:blogger.com,1999:blog-3025303879606870405.post-54687695903735280012010-07-25T15:00:00.002+02:002010-07-25T15:13:06.403+02:00JæjaVið Ásgeir höfum verið afslappaðir um helgina. Helder, portúgalskur danskennari kom í mat á föstudaginn. Við fórum í gær í Oosterpark, lágum í sólinni og lásum. Bökuðum svo pítsu. Í dag lestur, smá tiltekt og sitthvað fleira. Innan skamms ferð til Íslands.Í Amsturdammihttp://www.blogger.com/profile/15498099925631960885noreply@blogger.com120tag:blogger.com,1999:blog-3025303879606870405.post-84823268363054955112010-07-04T15:07:00.003+02:002010-07-04T15:18:01.871+02:00Smá blogg eftir langt hléJæja, ekkert blogg mánuðum saman. Eins og venjulega eftir langt hlé er best að blogga í símskeytastíl:
- Ásgeir var á Akureyri í apríl og maí, setti þar á svið, ásamt Ingu og fleirum, verkið Aftursnúið.
- Mamma og pabbi komu í heimsókn. Við keyrðum m.a. til Maastricht.
- Ég fór til Akureyra í maí og sá frumsýninguna. Lenti í smá veseni út af öskufalli.
- Alanya, Tyrklandi í júní. Frábært ferð; sól, strönd, hiti, sjór, sundlaug, sólbrúnka.
- Á meðan við vorum í Tyrklandi var mamma Ásgeirs í íbúðinni okkar hér í Amsterdam.
- Ásgeir í DelTebre 2 vikur í byrjun júlí.
- Ég er núna að læra taugameinafræði mjög gaman.
- Sól, sumar og hiti í Amsterdam.
- Fótboltastemmning í Hollandi, sem ég fylgist reyndar lítið með.
- Ofnæmi, ofnæmistöflur.
- Kláraði tvær bækur; Blink og Karlar sem hata konur.
- Grillað með Sillu og Óla.
Það er án efa margt sem ég gleymi. En læt þetta duga í bili.Í Amsturdammihttp://www.blogger.com/profile/15498099925631960885noreply@blogger.com35tag:blogger.com,1999:blog-3025303879606870405.post-44368117459938723112010-04-12T21:29:00.002+02:002010-04-12T21:34:24.357+02:00SkýrslanLas samantekt rannsóknarskýrslunnar. Þó að margt hafi legið fyrir kemur margt skýrar fram en áður. Svo margt fór úrskeiðis hjá stjórnvöldum að það er ótrúlegt. Það er líka makalaust hlutverk örlagavaldsins Davíðs Oddssonar.
Það er líkt og stjórnkerfið þurfi að byggjast upp frá grunni.Í Amsturdammihttp://www.blogger.com/profile/15498099925631960885noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-3025303879606870405.post-29202305998194464852010-04-11T17:20:00.002+02:002010-04-11T19:49:21.281+02:00TropenmuseumGóðri helgi er senn að ljúka. Skrapp ásamt Sillu og Óla á Tropenmuseum í dag. Þar skoðuðum við safngripi frá Suður-Ameríku, afríku og Asíu - margt frá nýlendutíma Hollendinga. Við í safnafélaginu drifum okkur þar sem það er ókeypis inn á söfn þessa helgina. Reyndar stendur til að kaupa árskort á söfn í Hollandi og fara síðan reglulega á sunnudögum. Safnaferðin í dag var eiginlega framhald af bæjarrölti í gærkvöldi þar sem við duttum inn á ótrúlegustu staði, m.a. stórfurðulegan stað þar sem var enginn plötusnúður heldur bara útvarpsstöð höfð á fullu blasti - með auglýsingum inn á milli. Á undan var matur hjá Sillu og Óla, ljúffengar íslenskar pulsur með öllu.
Á fimmtudaginn var hélt ég fyrirlestur um ristilkrabbameinsrannsókn á hollensku meinafræðidögunum. Þetta var góð reynsla en undirbúningurinn var frekar leiðinlegur. Það er ágætt að þetta sé búið.
Svo er Ásgeirs að vænta næstu helgi!!Í Amsturdammihttp://www.blogger.com/profile/15498099925631960885noreply@blogger.com22tag:blogger.com,1999:blog-3025303879606870405.post-37332404263305332702010-04-05T17:14:00.003+02:002010-04-05T17:21:50.927+02:00PáskarGarðar var í heimsókn um páskana. Hann kom á föstudag og fór í morgun. Við fórum bæði laugardag og sunnudag út fyrir borgina, til Leiden og Utrecht. Báða dagana var hráslagalegt og blautt en við héldumst þurrir undir regnhlífum. Fórum reglulega inn á kaffihús milli þess sem við skoðuðum þessar gömlu borgir. Í Leiden álpuðust við í Hortus Botanicus, þann elsta í Hollandi, og sáum óteljandi afbrigði af orkedíum á sérstakri orkedíusýningu. Útigarðurinn var hins vegar varla kominn undan vetri. Við skoðuðum líka dómkirkjuna í Utrecht og fórum í frábæran páskamat til Valtýs og Eddu í gær. Sváfum út, skruppum aðeins út á lífið og horfðum á góða bíómynd.
Auk þess er að líða að hollensku meinafræðidögunum þar sem ég þarf að vera með fyrirlestur. Er að vinna í því honum. Hlakka til að vera búinn.Í Amsturdammihttp://www.blogger.com/profile/15498099925631960885noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-3025303879606870405.post-57805955342963498822010-03-28T13:33:00.002+02:002010-03-28T13:54:22.998+02:00SunnudagsbloggÉg nenni ekki að gera fyrirlestur og á erfitt með að koma mér að verki. Í næstu viku á ég að flytja fyrirlestur á hollensku meinafræðidögunum um hluta ristilrannsóknarinnar. Þetta er pínulítið spennandi því að ég hef ekki flutt áður fyrirlestur á ráðstefnu. Á fimmtudaginn verður æfingafyrirlestur. Svo get ég endurbætt fyrirlesturinn næstu helgi. Í rannsókninni var ristilkrabbamein ungra borið saman við aldinna og hægra megin í ristli borið saman við vinstra megin. Þetta er áhugavert efni en niðurstöðurnar ekki sláandi.
Ásgeir hélt af landi brott í gær með viðkomu í Kaupmannahöfn til að heimsækja Vigni. Ég er einn í kotinu og hef setið við skrif. Tók líka til og þvoði þvott. Hjálpaði líka Sillu í gær við flutninga og við fórum svo á sérkennilegan veitingastað í hverfinu. Þá gafst tími til að ná í mjög dularfullt bréf á pósthúsið, bréf sem reynt var að færa mér hér heim í ábyrgðarpósti - Ásgeir mátti ekki taka við því. Ég fór á pósthúsið með vegabréfið og fékk hið dularfulla bréf í hendurnar. Þá var þetta bara nýja kreditkortið, ekki meira spennandi en það. Svo hóf ég lestur á bók eftir Sigurð Nordal, bók sem Þórunn amma gaf mér fyrir langa löngu síðan. Ég hafði lengi ætlað mér að lesa bókina en ekki komið því í verk. Undanfarið hef ég tekið eftir bókarkilinum í hillu í stofunni og byrjaði svo dag einn að lesa í henni. Það var eins og bókin kallaði á mig. Hún heitir Áfangar og fjallar um tilgang lífsins, hvorki meira né minna.
Í nótt komst á sumartími og nú er tveggja tíma munur á Hollandi og Íslandi. Ég skildi ekkert í því hvað ég virtist hafa sofið lengi í morgun. Svo er það að nefna að Garðar bróðir kemur í heimsókn næstu helgi.Í Amsturdammihttp://www.blogger.com/profile/15498099925631960885noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-3025303879606870405.post-70884428709933343442010-03-23T20:28:00.003+01:002010-03-26T22:36:21.584+01:00VlielandVið Ásgeir fórum í helgarferð til Vlieland síðastliðna helgi. Ferðalagið tók tók tæpa 5 klukkutíma með lest, rútu og ferju. Vlieland er frísnesk eyja norðarlega í Hollandi, eitt strjálbýlasta svæði landsins með 1300 íbúa. Við komum þangað á föstudagskvöldi, leigðum hjól og gistum á góðu hóteli rétt fyrir utan þorpið. Við skoðuðum þorpið og fundum út að aðaltískufyrirbrigðið í gluggakistum eyjaskeggja var symmetría - þ.e.a.s. tvennt af einhverju, yfirleitt tveir vasar (oft með greinum) eða tveir blómapottar, stundum tveir kertastjakar. Við fórum út að borða í þorpinu, keyptum ís og fórum á bar og hlustuðum á trúbador. Svo hjóluðum við um eyna og fórum á afskekkt kaffihús, fengum bæði rok með smá rigningu og sólskin, gengum á langri hvítri strönd, horfðum á seglskútur, sáum hollensk sumarhús og helling af alls konar fuglum, skoðuðum gömul kort sem sýndu að eyjan var miklu stærri áður fyrr og heilt þorp var farið í kaf, horfðum á skemmtilegar bíómyndir, spiluðum, drukkum rauðvín og slökuðum á. Við fórum í túristabúð og keyptum tvö kerti til að hafa symmetrískt skraut heima.
Svo er það að frétta að ég fer nú daglega til den Haag þar sem fæ að kynnast réttarlæknisfræði. Stundum sé ég í fréttum hvort eitthvað verður að gera í vinnunni næsta dag. Í gær fór ég í réttarsal en það var mjög áhugavert að sjá.
Þar til síðar.Í Amsturdammihttp://www.blogger.com/profile/15498099925631960885noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-3025303879606870405.post-817107678315722642010-03-03T21:07:00.003+01:002010-03-03T21:27:05.647+01:00Kominn marsMargt hefur verið brallað síðan síðast.
- Axel og Eric komu í heimsókn, gistu eina nótt, skruppuð á djammið.
- Ásgeir vinnur þessa dagana sem statisti í óperu, ýmist munkur eða fangi.
- Dansverkið IOVIODIO, sem Ásgeir dansar í, var frumsýnt, gekk mjög vel.
- Keyptum borð í IKEA, sem varð til þess að við tókum til í öllum skúffum á heimilinu.
- 2 af 3 hjólum fóru í viðgerð í vikunni.
- Eyjólfur flutti til Utrecht, kom með okkur á djammið og gisti í Amsterdam.
- Ég vann lestarspilið, loksins.
- Ristilgreinin sem ég skrifaði í haust ásamt öðrum var samþykkt til birtingar í International Journal of Cancer.
- Höldum áfram að horfa á Will og Grace á netinu, komnir í seríu 3.
- Höldum einnig áfram að horfa á Lost, núna er 5. sería byrjuð.
- Verð 2 vikur í mars með réttarlæknisfræði-rotation. Þarf þá að fara til den Haag daglega. Á laugardag kúrs í blóðmeinafræði. Í apríl kúrs í cýtólógíu. Auk þess verð ég með fyrirlestur á hollensku meinafræðidögunum í byrjun apríl.
- Var á bakvakt í síðustu viku - aldrei hringt.
- Fylgst með Icesafe ... ætlar þetta aldrei að taka enda?
- Loksins farið að hlýna, ekki jafnkalt heima.
- Pabbi 65 ára.
- Ýmis áhugaverð sýni í vinnunni: 2 granulosa cell tumorar, Chagaz disease í smágirni, Malakoplakia í nýra, Langerhans cell histiocytosis, hepatocellular adenoma, hydrops foetalis, sacrococcygeal teratoma, synovial sarcoma, eosinophilic colitis, eosinophilic oesophagitis, autoimmune gastritis, embryonal rhabdomyosarcoma, ganglioneuroblastoma, ependymoma, retinoblastoma, perineurioma, enchondroma og margt fleira sem ég man ekki í svipinn.Í Amsturdammihttp://www.blogger.com/profile/15498099925631960885noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-3025303879606870405.post-10713172347998053342010-01-23T14:49:00.004+01:002010-01-30T11:28:46.150+01:00Tími til kominnEr ekki kominn tími til að blogga aðeins? Jú, ég held það. Ýmislegt hefur drifið á daga okkar frá síðasta bloggi og þessi færsla verður í símskeytastíl.
- Gulli og Andrés voru hjá okkur yfir áramót. Við Ásgeir vorum báðir í fríi samtímis. Silla og Óli komu í mat á gamlárskvöld. Mikið stuð. Skruppum líka einn daginn í ferð til Gouda og Utrecht. Ævintýraleg dómkirkja í Utrecht.
- Hér var mjög kald í desember og byrjun janúar, sem betur fer orðið hlýrra núna. Allt fram á þessa viku var ís á sýkjunum. Núna rigning í staðinn, samt skárra en snjórinn.
- Var með 2 vikna rannsóknartíma í byrjun janúar - næsta grein fjallar um tímabreytingar á ristilkrabbamein á 35 árum.
- Fórum á Avatar og Sherlock Holmes í bíó, hvorutveggja góðar myndir.
- Matt frá Spáni var hjá okkur eina helgi, djamm.
- Stærðarinnar kaffiboð á sunnudegi.
- Út að borða á Bazar.
- Ásgeir æfir og æfir fyrir frumsýningu um miðjan febrúar.
- Ásgeir var slæmur í bakinu en lagaðist mikið eftir sjúkranudd.
- Skáphurðirnar eru byrjaðar að hrynja af Ikea-innréttingunni í eldhúsinu. Vesen.
- Það lak úr sturtunni okkar niður á næstu hæð. Búið að kítta og laga það.
- 2 hjól af þremur biluð.
- Will og Grace maraþon.
- Þorrablót Íslendingafélagsins í Hollandi.
- Spáð og spekúlerað í Icesave. Meiri skilningur meðal Hollendinga á málinu en áður. Hef reyndar þurft að hlusta á nokkra lélega Icesafe-brandara.
- Ásgeir og Óli verða aukaleikarar í óperusýningu í febrúar. Ásgeir verður fangi en Óli munkur. Þeir verða meðal 75 aukaleikara í stórri uppfærslu.
- Í kvöld: matur hjá Valtý og Eddu í Houten.
- Á morgun: árdegisbítur hjá Guðrúnu og Birni.
Eitthvað fleira? Sennilega en ég man ekki eftir því núna.
Kv Pétur.Í Amsturdammihttp://www.blogger.com/profile/15498099925631960885noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-3025303879606870405.post-49169994778379415472009-12-27T19:46:00.002+01:002009-12-27T20:09:11.970+01:00Jólatrénu hent fram af svölumÞá er kominn þriðji í jólum og við erum reynslunni ríkari. Vitum núna að við getum haldið jól og séð um jólamat. Við fengum hvít jól hér í Amsterdam. Ég var á bakvakt en hún var róleg, fékk aðeins tvö símtöl en þurfti ekki að fara niður á spítala. Á Þorláksmessu keyptum við jólatré. Það eina sem var í boði var jólatré í potti. Kallinn á jólatrésölunni sagði að svona væri þetta orðið nú til dags. Tréð kæmi bara í potti í mold. Ég keypti tréð í grennd við spítalann hélt svo á því út á næstu metróstöð (sem var í 20 til 30 mínútna fjarlægð) og var orðinn búinn í handleggjum og öxlum. Þegar heim var komið var fallega grenitrénu okkar umpottað þannig að það stóð lárétt á stofugólfinu. Síðan skreyttum við jólatréð og tókum upp vídeójólakort sem núna er á youtube. Ég losnaði úr vinnu í fyrra fallinu á aðfangadag og komst loksins heim. Við höfðum hamborgarhrygg með brúnuðum kartöflum á aðfangadag, graflax í forrétt og hrísgrjónagraut ("rísalaman") í eftirrétt. Maturinn tókst vel og við opnuðum svo alla pakkana sem voru undir trénu. Reyndar fórum við að taka eftir því á aðfangadag að tréð var ekki líflaust. Litlir maurar birtust af og til, sennilega vöknuðu þeir til lífsins í hitanum. Ég setti upp límbandsvarnargarð. Hann hélt þessum stöku maurum í skefjum en það dugði samt ekki til. Þá var annar ytri límbandsgarður settur upp svo og þykkt sjampó í stóru undirskálina undir blómapottinum. Við rúlluðum upp maurunum með límbandsrúllu til að ná ryki úr fötum. Þegar þetta reyndist ekki virka sem skyldi var stríðinu við maurana tapað. Þeir voru nú ekkert ógurlega margir (náðum kannski 80 maurum) en við nenntum ekki að standa í þessu og losuðum okkur við tréð í gær. Við tókum skrautið af trénu, settum poka utan um rótina og hentum því fram af frönsku svölunum, ofan af þriðju hæð og niður á gangstétt þar sem tréð hlammaðist í stéttina. Vonandi varð maurunum bylt við þetta. Þarna bíður þetta fallega tré en eftir því að vera hirt af ruslakörlum. Þetta er ábyggilega eina tréð á svæðinu sem er strax komið út. Það gerir svo sem ekkert til. Á næsta ári verður keypt gervijólatré (svo vorum við líka með pínulítið ofnæmi fyrir trénu).
Silla og Óli komu í mat á jóladag (hangikjöt auðvitað). Þau komu m.a. með uppstú, vestfirskar flatkökur og eftirrétt. Fyrr um daginn lágum við í leti og lásum. Í gær var afslöppunardagur og í dag kom Marianna (samstarfsfélagi úr vinnunni) í hádegismat ásamt manni sínum og systur. Við höfum spilað mikið lestarspilið þessi jólin. Mér hefur tekist að vinna Ásgeir einu sinni (af ótal skiptum). Síðan höfum við prufað Heilaspilið sem var í möndlugjöf og annað spil sem Silla og Óli komu með sem heitir Spurt að leikslokum (held ég). Ekki á morgun heldur hinn koma Andrés og Gulli í heimsókn og verða hjá okkur yfir áramótin. Við hlökkum mikið til.Í Amsturdammihttp://www.blogger.com/profile/15498099925631960885noreply@blogger.com21tag:blogger.com,1999:blog-3025303879606870405.post-69945222274243015632009-12-14T02:07:00.002+01:002009-12-14T02:20:24.407+01:00Smá helgarbloggStutt blogg í símskeytastíl - klukkan er orðin allt of margt:
- Píanó komið heim í stofu. Við Ásgeir spilum jólalög fjórhent. Urðum að flytja til húsgögn.
- Ásgeir fór á fullt af danssýningum: í Rotterdam á þriðjudaginn, hér í Amsterdam í dag og Groningen á föstudag. Þar missti hannaf kvöldlestinni til Amsterdam. Gafst þá gott tækifæri til að kíkja út á lífið í Groningen með Ingu og fleira fólki úr dansinum.
- Fórum í bæinn um helgina og keyptum jólagjafir.
- Kristjana, frænka Ásgeirs sem er í námi í Delft, kom í kvöldmat í gær og gisti eina nótt. Ásgeir er orðinn snillingur að búa til Risotto. Við spiluðum lestarspilið (rosalega skemmtilegt spil).
- Will kom í kvöldmat.
- Fórum í kaffi til Sillu og Óla í kvöld. Ætlum öll að kaupa árskort á hollensk söfn.
- Búið að rigna heilmikið hér. Í dag þurrt en kalt.
- Ísland næstu helgi - hlakka til.Í Amsturdammihttp://www.blogger.com/profile/15498099925631960885noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-3025303879606870405.post-18084178285931009262009-11-29T19:22:00.002+01:002009-11-29T19:30:33.129+01:00HelgarbloggEnn einni helginni að ljúka. Fór í gær í Body Pump í ræktinni - er allur lurkum laminn í dag, með harðsperrur og stirðleika. Við Ásgeir fengum gesti í mat í gærkvöldi; Renate og Sigrúnu. Renate býr í Rotterdam þar sem hún er í sérnámi í meltingarlæknisfræði og Sigrún er nýflutt hingað og er að læra hollensku áður en hún byrjar að vinna á kvennadeildinni á spítala í Amsterdam. Við Ásgeir fórum líka í bæinn í gær og ég keypti nýja síma og ... píanó! Loksins lét ég verða af því. Þetta var reyndar rafmagnspíanó en samt mjög gott að spila á það, hlakka til að fá það hingað heim næsta föstudag. Í dag fórum við svo niður í bæ á kaffihús og svo á danssýningu. Á morgun ný vinnuvika.Í Amsturdammihttp://www.blogger.com/profile/15498099925631960885noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-3025303879606870405.post-52924238651902455302009-11-23T00:15:00.003+01:002009-11-23T00:35:50.668+01:00Færri bloggHef ekkert bloggað í meira en mánuð. Þetta er einhvern veginn lögmál flestra blogga; smám saman fækkar færslunum. Þetta blogg verður í stikkorðastíl - upptaling á því sem hefur gerst frá því síðast:
*Fór til Den Haag að horfa á kynningu á því verki sem Ásgeir er að æfa og sett verður á svið í febrúar (Danshöfundurinn Gabriela Maiorino).
*Kúrs í ónæmisfræði og bólgu í Groningen.
*Palli Einars kom í helgarheimsókn frá Íslandi.
*Horft á Wil og Grace með Ásgeiri og ýmsar bíómyndir.
*Matarboð hjá Valtý og Eddu í Houten.
*Sigrún Perla flutti til Amsterdam til að fara í sérnám í kvensjúkdóma- og fæðingalæknisfræði.
*Ásgeir dansaði á þremur sýningum ásamt fleirum í verki eftir danshöfundinn Bruno.
*Ferð til Barcelona til að hitta Xavier, afmælisveisla í Pýreneafjöllunum og fjallganga.
Og sennilega eitthvað fleira.Í Amsturdammihttp://www.blogger.com/profile/15498099925631960885noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-3025303879606870405.post-57844277191375210552009-10-04T14:14:00.003+02:002009-10-04T14:26:45.862+02:00Ásgeir kominn til Amsterdam, hættur í Alkmaar.Ásgeir kom á föstudaginn, loksins. Hann var í London á námskeiði og svo vinnubúðum í Gautaborg.
Lífið á Nieuwe Achtergracht er því komið í góðan gír. Framundan er vinna hjá Ásgeiri ásamt öðrum dönsurum hjá danshöfundnum Gabriela Maiorino.
Sjonni var í heimsókn síðustu helgi. Auk þess sem kom fram í síðasta pósti fórum við í tveggja tíma kanósiglingu í frábæru veðri í útjaðri Amsterdam. Endurnar máttu forða sér undan okkur. Svo fórum við í dýragarðinn í Amsterdam - sem reyndist miklu stærri og áhugaverðari en ég átti von á. Þá fórum einnig á píanótónleika. Sjonni skrapp til Haarlem á mánudegi en þar reyndist allt hið áhugaverða vera lokað (alræmdar mándagslokanir sem við vitum núna um).
Hvað fleira? Jú, ég lauk vinnu í Alkmaar eftir ár þar. Þar var haldin kveðjuveisla í lok vinnudags þar sem ég fékk nokkrar gjafir; hollenska brandarabók, mjög flotta bók um brjóstameinafræði, blómvönd og bók þar sem allir starfsmennirnir voru búnir að skrifa hver á sína síðu eitthvað skemmtilegt, svo sem þakkir fyrir gott samstarf og óskir um velgengni í framtíðinni. Þetta var sérlega ánægjulegt og skemmtilegt. Ég sá um léttar veitingar sem Sjonni kom með frá Íslandi; þar var um að ræða alls kyns íslenskt nammi og svo smá smakk af harðfiski, lifrarpylsu og sviðasulta. Ég kem til með að sakna vinnunnar í Alkmaar - þar var mjög gott að vera. En mér finnst gott að þurfa ekki að ferðast 2 og hálfa klukkustund á dag héðan í frá.Í Amsturdammihttp://www.blogger.com/profile/15498099925631960885noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-3025303879606870405.post-69539855763448044922009-09-26T14:15:00.002+02:002009-09-26T14:23:12.973+02:00Reif buxurnarÍ einu eldra bloggi skrifaði ég um það hvernig spítalalóðin í Alkmaar er að hluta (svona 50%) til girt með hárri girðingu með gaddavír og til að komast í gegn þarf maður að fara í gegnum rammgerð hlið með göddum ofan á. Af einhverjum ástæðum er svo hliðunum lokað á kvöldin og þá þarf maður að fara út að framan og fara stóran krók til að komast á lestarstöðina. Enginn virðist vita af hverju þetta er svona, þetta er eitt af þessu skrýtna sem maður rekur sig á í útlöndum en heimafólki finnst sjálfsagt. Ég var seint á ferðinni og klifraði yfir hliðið líkt og ég hef reyndar oft gert áður. En núna var ég óheppinn - önnur buxnaskálmin festist í göddunum og það kom gat. Mig langar helst til að stoppa upp í lásana með drasli og eyðileggja þessi asnalegu hlið.
Sjonni er í heimsókn (ps hann biður að heilsa). Við fórum í gær á Ríkislistasafnið meðal annars. Í dag er förinni heitið í Amsterdamskóginn til að fara á kanó í lúxusveðri.
Pétur.Í Amsturdammihttp://www.blogger.com/profile/15498099925631960885noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-3025303879606870405.post-25015483123022830302009-09-20T22:50:00.002+02:002009-09-20T23:12:41.389+02:00Enn eitt helgarbloggiðHvar á maður að byrja eftir stutt bloggstopp? Til dæmis með því að segja frá því að þarsíðustu helgi sótti Ásgeir um starf við dans hér í grennd við Amsterdam og fékk það. Það verðu að geta þess að það var á brattan að sækja; 400 manns sóttu um að fá að koma í prufuna, þar af fengu 150 að mæta á svæðið. Fyrsta val fór fram á föstudegi, næsta val á laugardegi og svo loks aftur á sunnudegi uns tæplega 15 manns voru eftir. Þá þurfti að velja 6 til starfans - og Ásgeir fékk auðvitað starfið. Danshöfundurinn heitir Gabriela Majorino (ég skrifa þetta ábyggilega ekki rétt).
Helgina þar á eftir komu Friðrik og Helga í heimsókn. Þá var auðvitað gert margt skemmtilegt, m.a. siglt um síki Amsturdamms á mótorbáti, gengið út um allt, slakað á og borðaður góður matur.
Ásgeir hélt til London síðustu helgi þar sem hann er búinn að vera á vinsælu dansnámskeiði. Hjá mér hefur verið mikið að gera í vinnunni. Ég á bara eina og hálfa viku eftir í Alkmaar - þá fer ég aftur á spítalann í Amsterdam. Fór í brúðkaup á föstudag, glæsilegar veitingar á litlum veitingastað í borginni sem var eingöngu nýttur í þetta, og síðan sigling um síki borgarinnar á gömlum lystibát. Í gær vaknaði ég snemma (þreyttur og myglaður) og fór á dagsnámskeið í nýrnameinafræði. Var svo þreyttur í gærkvöldi að ég gat varla staðið upp af sófanum. Framundan er ýmislegt en það helst að Sjonni kemur í heimsókn næstu helgi.Í Amsturdammihttp://www.blogger.com/profile/15498099925631960885noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-3025303879606870405.post-77147688341208255002009-08-30T11:14:00.002+02:002009-08-30T11:24:06.166+02:00FerðamánuðurÞessi mánuður hefur verið mikill ferðamánuður. Í vinnunni sagði einhver í gríni að ég kæmi stundum til Hollands til að vinna aðeins. Ég er sem sagt búinn að fara til London, Stokkhólms og Graz, allt á 2-3 vikum. Ég fór í helgarferð til London til að hitta Jakob og Garðar bróður, gisti hjá Jakobi. Svo fór ég til Stokkhólms til að heimsækja Þorgeiri, Helgu, Árna og Steinunni. Þar gisti ég hjá Þorgeiri og Helgu. Ég hef komið oft til beggja staða þannig að ég hafði enga þörf fyrir að fara um allt eins og ferðamaður og gat notið þess að vera með öllum vinunum. Svo fór ég til Graz í Austurríki. Þar var ég í nokkra daga á kúrsi í brjóstameinafræði, frábært námskeið þar sem ég lærði mikið. Graz er líka skemmtilegur bær - get alveg mælt með því að fólk fari þangað. Ekki eru fyrirhugaðar ferðir á næstunni en reyndar fáum við heimsóknir, næstu helgi verða hér 2 vinkonur Ásgeirs sem koma til Amsterdam til að fara í prufu, svo koma Friðrik og Helga helgina þar á eftir og loks kemur Sjonni í lok mánaðarins.
Ásgeir var þennan mánuðinn 10 daga í burtu í Berlín. Þar tók hann þátt í verkefninu Bodies in Urban spaces. Í september fer Ásgeir á 2 kúrsa; einn í London og annan í Gautaborg auk þess sem fyrir liggja 2-3 prufur.Í Amsturdammihttp://www.blogger.com/profile/15498099925631960885noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-3025303879606870405.post-45132191659422929202009-08-09T12:48:00.002+02:002009-08-09T13:11:22.560+02:00Kanó í Amsterdamse bosVið Ásgeir hjóluðum til útjaðars Amsturdamms í gær. Ferðinni var heitið til Amsterdamse bos (=skógur) þar sem við leigðum tvo einmenningskanóa. Skógurinn er langt undir sjávarmáli og um allan skóg liggur net af sýkjum. Svo rerum við eftir sýkjunum í frábæru veðri. Á leiðinni heim stoppuðum við á gamla ólympíuleikvanginum í Amsterdam (munið þið ekki eftir ólympíuleikunum í Amsterdam 1928?) þar sem fór fram Hið opna frjálsíþróttamót Amsturdamms. Héldum svo heim, borðuðum indónesískan mat og tókum Will og Grace maraþon, horfðum á svona 5 fimm þætti. Skoðuðum líka íslensku gleðigönguna á netinu sem virtist vera mjög skemmtileg.
Annars höfum við gert ýmislegt skemmtilegt okkur til dundurs. Ásgeir fór á ströndina á fimmtudag og síðustu helgi var auðvitað gleðiganga (gleðisigling!) hér í Amsterdam. Þá var mikið um dýrðir. Við fórum í frábært partí.
Sunnudeginum verður varið í þrif, frágang, matarinnkaup og þvott. Ásgeir heldur til Berlínar á fimmtudag til vinnu og verður þar í tæpar tvær vikur. Á meðan skrepp ég í tvær helgarferðir, fyrst til London og svo til Stokkhólms.
Um daginn gerðist atburður hér í Amsterdam sem staðfesti þá skoðun mína að maður eigi helst ekki að taka leigubíl á aðallestarstöðinni eða Leidseplein (lesist Lækjartorg). Það sem gerðist var að farþegi ætlaði að taka leigubíl á Leidseplein og leigubílstjórinn fór fram á 50 evrur fyrir ferðina (sem er auðvitað rugl innanbæjar því að startgjaldið er 7,5 evrur og ekkert bætist ofan á það fyrstu 2 kílómetrana). Leigubílstjórarnir eru oft einhverjir gaurar sem eru komnir í bæinn til að græða, ósjaldan einhverjir með glæpaferil að baki. Þeir fóru að rífast og það endaði þannig að farþeginn fór í burtu. Þá kom leigubílstjórinn (sem kunni Tai Kwon do) og sló í manninn í höfuðið að aftan, maðurinn féll niður og reyndist svo vera dauður! Við Ásgeir höfum slæma reynslu af leigubílstjórum hér (sjá eldri færslur!) og reynum í lengstu lög að taka ekki leigubíl.
Síðustu viku voru 5 krufningar, þar af voru tveir einstaklingar milli 40 og 45 ára aldurs sem létust úr kransæðastíflu. Það finnst mér ungt. Annars var mikið að gera - og ég sem hélt að það yrði aðeins rólegra þarna á sumrin.Í Amsturdammihttp://www.blogger.com/profile/15498099925631960885noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-3025303879606870405.post-46575707230230637092009-07-25T22:30:00.002+02:002009-07-25T22:56:51.040+02:00BillyVið Ásgeir borðuðum ljúffengan mat í kvöld hér heima. Vitaskuld var það eitthvað sem Ásgeir eldaði. Hann fann uppskriftina í Jamie Oliver. Svo prufaði hann góða uppskrift af heimasíðunni hans Ragnars um daginn - ljúffengur réttur.
Holland hefur verið í fréttum heima. Sama er ekki beinlínis að segja um Ísland sem hefur vart borið á góma. Í DV var frétt um Hollendinga sem ætla að gera árás á Ísland og ná í IceSavepeningana. Ég las þessa síðu í gegn - greinilega samin af einhverjum með stórmennskubrjálæði. IceSavemálið hefur greinilega beint sjónum ruglaðra manna að litla Íslandi. Ég verð alls ekkert var við viðhorf af þessu tagi. Í augum flestra hér er IceSavemálið leyst, eða a.m.k. ekki á döfinni.
Ásgeir fór í vikunni og keypti bókaskápinn Billy í Ikea. Reiddi skápinn heim á hjóli - mikið afrek. Stofan okkar er orðin svakalega fín. Greinin mín um ristilkrabbamein (munur á hægri og vinstri hluta) er alveg að verða búin. Ég vinn að henni þegar tími gefst til og hún er alveg að verða tilbúin. Það verður frábært að klára hana.
Vinnan.. jú, það voru nokkur áhugaverð tilfelli þessa vikuna, t.d. útbreiddar fituembólíur í lungum eftir lærleggsbrot og aðgerð, nokkrar undirtýpur legbolsslímhúðarkrabbameins, vellus hair cyst, erythema chronicum migrans, palmoplantar pustulosis, atypical fibroxanthoma, goblet cel type hyperplastic polyp, nodular melanoma, mesonephric hyperplasia í leghálsi, anaplastic T frumu lymphoma, Kaposi sarcoma í forhúð.
Á næstunni Gay pride hér í Amsterdam, London, Stokkhólmur, Graz og síðustu 2 mánuðirnir í Alkmaar.Í Amsturdammihttp://www.blogger.com/profile/15498099925631960885noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-3025303879606870405.post-59402684183863112722009-07-16T20:14:00.002+02:002009-07-16T20:22:19.226+02:00BloggiðEru flestir hættir að blogga? Hér til hliðar er listi yfir ýmis blogg en flestir eru hættir.
Annars er allt gott að frétta. Það hefur verið aðeins minna að gera í vinnunni undanfarið og ég er yfirleitt kominn heim klukkan sjö. Við fórum síðustu helgi í kvöldmat til Valtýs sem er að læra barnalæknisfræði í Utrecht. Um þessar mundir erum við einu Íslendingarnir í sérnámi í læknisfræði í Hollandi. Það var mjög gaman að heimsækja Valtý og konuna hans, Eddu. Þau búa í þorpi rétt utan við Utrecht. Þetta þorp er fullkomið fyrir fjölskyldufólk og það var gaman að sjá hversu vel þau búa. Mér hafði verið sagt að það væri mjög gott að ala upp börn í Hollandi og svo sagði Edda mér að kannanir sýni að hollensk börn séu hamingjusömustu börn í heimi.
Við fórum á laugardaginn í danspartí á Melkweg en fyrr um daginn vann ég í enn einni greininni sem ég er að skrifa um ristilkrabbamein.
Vignir kom í heimsókn í dag og verður fram á sunnudag. Hér verður mikið stuð.
Svo er maður að spá í það hvað best sé að gera við peningana heima á Íslandi.... hmmm.Í Amsturdammihttp://www.blogger.com/profile/15498099925631960885noreply@blogger.com4tag:blogger.com,1999:blog-3025303879606870405.post-90759531466060367362009-07-11T10:08:00.004+02:002009-07-14T08:22:00.818+02:00StaatslotterijO, vann ekkert í lottóinu hollenska, staatslotterij - hæsti vinningur var 24 milljónir evra auk fjölda smærri peningavinninga en ég vann ekkert á eina lottómiðann sem ég keypti á 15 evrur. Hæsti vinningurinn gekk reyndar ekki út (þeir draga ekki bara út á selda miða). Líkurnar á því að vinna stærsta vinninginn eru reyndar mjög litlar; maður þarf að hafa 6 tölustafi og tvo bókstafi rétta.
Ásgeir tognaði síðastliðinn sunnudag á ökkla og hefur verið mestmegnis heima þessa vikuna. Þetta kom sér mjög illa því að hann var bókaður í prufu í dag í Dusseldorf. Þrátt fyrir meiðslin fór Ásgeir með lest til Dusseldorf í morgun en ætlar að fara mjög varlega til að togna ekki aftur.
Síðusta helgi var mjög skemmtileg. Við fórum niður á strönd á laugardeginum, Zandvoort am Zee. Það er frábær strönd og sjórinn (Atlantshafið!) var meira að segja hlýr inn við land. Ég bjó til stórt sandfjall. Ásgeir og Inga æfðu dans en Kjarri tók myndir af öllu saman.
Í síðustu viku fór ég á námskeið, fyrst kvöldnámskeið í forstigsbreytingum vélindakrabbameins og svo á þriggja daga námskeið í sameindameinafræði. Framfarir í skilningi á sjúkdómum liggja í sameindalíffræði þannig að ef maður ætlar að vera með á nótunum er eins gott að setja sig inn í það efni sem fyrst. Það má segja að sameindameinafræði sé einu stigi lengra inn í líkamann en það sem ég geri dags daglega - en það er annars vegar að skoða vefina með berum augum og svo í smásjá. Sameindirnar sjást hins vegar ekki í smásjánni og þess vegna segi ég að þetta sé einu stigi lengra gengið.
Annars finnst mér stundum skondin sú vanþekking sem fólk hefur á því starf sem ég sinni. Það virðist til dæmis algengur misskilningur að halda að vefjasýni séu send í ræktun. Ræktun???? Jú, strok, vessar og vökvasýni eru send í sýklaræktun. Sýni frá sjálfum vefjunum eru sjaldnar send í sýklarannsókn en oftast í vefjarannsókn - skoðun á því hvernig vefur er byggður upp og hvaða sjúkdómar þar birtast.
En hvað hefur áhugavert drifið á fjörur mínar í vinnunni undanfarið? Granulomatous bólga í eista og eistalyppu, eitlaæxli í eista, teratoid carcinosarcoma í eggjastokk, serous krabbamein í legbolsslímhúð, rauðir hundar í húðsýni frá andliti, Meckels diverticulum með ectópískan brisvef, granulomatous bólga í lifur, phyllodes tumor í brjósti, tærfrumubrjóskkrabbamein, lifrarkrabbamein, legbolsslímhúð með anovulatory breytingar, dilateruð cardiomyopathia, hemochromatosis í lifur, lentigo maligna melanoma, pseudoangiomatous stromal hyperplasia í brjósti, aukabrjóst í handarkrika og ýmislegt fleira.
Þetta hefur verið ein allsherjar afmælishelgi. Ásgeir átti afmæli á föstudag og ég var búinn að fá frí í vinnunni. Ferðinni var heitið til Zandfoort sem er strandbær hér í Hollandi. Þetta var óvissuferð en Ásgeir komst að því hvert við værum að fara þegar við komum á aðallestarstöðina. Við byrjuðum á því að fara í stóra sundlaug með rennibrautum, öldulaug og fleiru. Svo fórum við niður á strönd og busluðum í Atlantshafinu, sem var ekki nærri því jafnkalt og við bjuggumst við. Við skrifuðum í sandinn og sólbrunnum pínulítið. Þá héldum við aftur í bæinn og fórum í Vondelpark með hvítvín og Sushi sem við borðuðum með nokkrum vinum. Flúðum síðan undan úrhellisrigningu seint um kvöldið, fyrst undir næsta tré en síðan inn á veitingastað í garðinum þar sem við sátum þar til slotaði.
Á annan í afmæli fórum við til Alkmaar. Þar var miðaldahátíð og stór ostamarkaður. Búið var að dubba hluta miðbæjarins upp í miðaldastemmningu. Fjöldi fólks úr bænum var í búningum og þemað var drungaleg með holdsveiku fólki, plágu-jarðaför, kroppinbökum og vændiskonum. Ásgeir vildi komast þaðan út eftir 5 mínútur þar sem honum fannst þetta hræðilega leiðinlegt. Ýmsar spurningar vöknuðu, s.s.: Var svona mikill hávaði og áreiti á miðöldum? Voru götur svona troðnar af fólki? Gekk fólk um með hrossabresti? Eftir að hafa komið okkur út úr miðaldabrjálæðinu fórum við á bæjartorgið og smökkuðum allar tegundir af ostum og keyptum loks nokkra ljúffenga osta auk afmælisgjafar handa Ben, Frakka sem við þekkjum, en förinni var nefnilega haldið í afmælisveisluna hans um kvöldið. Við mættum fyrir utan Önnu Frank safnið klukkan átta og þar fór hópur fólks, afmælisgestir, um borð í veislubát sem siglt var um sýki Amstedam næstu tvo tímana. Boðið var upp á vín og veitingar. Því næst fórum við á galleríopnun á heimili einhverrar Wöndu, sem einn afmælisgesta þekkti. Þar var boðið upp á afganskan mat sem var ljúffengur. Því næstu fórum við á listaverkasýningu í antikraak-húsnæði sunnarlega í borginni. Antikraak er andheitið við hústöku en þá býr einhver í húsnæði sem ekki gengur að selja og gætir þess, þó aðallega þess að hústökufólk taki húsnæðið. Við héldum svo heim á leið, dauðþreyttir eftir daginn.
Nú er bara rólegur sunnudagur. Það hefur verið mjög hlýtt um helgina. Maður getur farið um á stuttermabol og stuttbuxum þó að komin sé nótt. Við sitjum nú hér og höfum opið út á svalir í hitanum. Ættum kannski að taka fram viftuna.Í Amsturdammihttp://www.blogger.com/profile/15498099925631960885noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-3025303879606870405.post-7029955712490588172009-06-21T14:00:00.003+02:002009-06-21T14:30:09.206+02:00Amsterdam, Ísland, NY, Amsterdam.Hvar á maður að byrja eftir 4 mánaða hlé á bloggi?
Í stuttu máli fór ég til Íslands 23. maí. Það var tími til kominn að hitta Ásgeir! Á Íslandi:
-sá lokasýningu á verkinu Deadheads lament sem Ásgeir dansaði í ásamt bekkjarfélögum sínum.
-útskrift Ásgeirs í Borgarleikhúsinu og útskriftarpartí um kvöldið.
-brúðkaup Bjarka, bróður Ásgeirs, og Helgu.
-Bláa lónið.
-gönguferð upp að Glym á afmælisdaginn, sund í nýju sundlauginni í Mosfellssveit, kvöldmatur hjá mömmu og pabba og svo bíó.
-matur hjá Önnu og Óskari.
-viðkoma í meinafræðinni, að sjálfsögðu.
-hitti vini.
-fór á danssýninguna humanimal með Gulla og Andrési, og Ásgeiri auðvitað.
-góður matur og gestrisni í Álfabergi.
-borðaði langvíuegg.
Flugum frá Íslandi til NY 1. júní. NY:
-gistum á hóteli á Manhattan, fínt hótel sem við mælum með (Marcel at Gramercy).
-söngleikurinn Avenue Q.
-uppistand.
-danssýningin Fuerza Bruta.
-Empire State Building.
-rauðvín í Central Park.
-hittum oft vin okkar Ben Strothman sem býr í NY, frábær leiðsögumaður.
-hittum dansarann Will, vin Ásgeirs, í Brooklyn þar sem hann býr.
-Ellen´s diner með þjónum sem syngja Broadway lög.
-píanóbarinn Don´t Tell Mama.
-risakrabbi á sjávarréttastaðnum City Crab.
-Ásgeir sá í bakið á einhverjum frægum, ég engan.
-gengum út um allt; fjármálahverfið með Wall Street, Twin Tower staðurinn, Kínahverfið, Litla Ítalía, Greenwich Village, alls kyns breiðstræti, Broadway, Times Square, glæsiverslunarhús, Chelsea, Soho, risastórar byggingar, margt fólk, umferðargnýr og fleira og fleira.
-lærðum að gefa þjórfé.
-notuðum metró New York borgar og tókum taxa.
-Museum of Modern Art.
-Djamm
Frábær ferð. Flugum heim 8. júní, lentum í Dusseldorf og tókum lest til Amsterdam.
Síðan við komum heim: rólegheit, vinna, bíó í gær (Sunshine Cleaning), danssýning í Vondelpark, ný blóm á frönsku svölunum, kókosbrauð a la Ásgeir, gott veður og fleira. Fórum í gær á safn, Museum van Loon, sem er safn hér í Amsterdam er sýnir hýbíli mjög ríkrar fjölskyldu er stofnaði meðal annars Hollenska Austur-Indíafélagið sem hafði m.a. einkaleyfi á verslun í Asíu og þrælasölu.
Kv. Pétur.Í Amsturdammihttp://www.blogger.com/profile/15498099925631960885noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-3025303879606870405.post-59063081287779384422009-05-22T20:26:00.003+02:002009-05-22T20:55:12.284+02:00Ams í dag, Rvk á morgun, NY eftir viku.Fer loks til Íslands á morgun. Ásgeir fjarri í rúmar 6 vikur. Get ekki beðið eftir því að komast á klakann! Margt skemmtilegt liggur fyrir, m.a. leikhúsferð, steggjun, fjallferðir, Bláa lónið, brúðkaup Bjarka bróður Ásgeirs, útskriftarveisla Ásgeirs, afmælið mitt og síðast en ekki síst verður förinni heitið síðan til New York eftir vikudvöl á Íslandi. Ég hef aldrei komið þangað og Ásgeir hefur ekki komið til Bandaríkjanna þannig að við erum báðir mjög spenntir.
Jakob og kærasti hans Augusto voru í heimsókn síðastliðna helgi. Það var rosalega gaman að fá þá í heimsókn. Hér var Eurovision-kvöld, borðað íslenskt lambakjöt og farið á galeiðuna. Við skoðuðum Amsterdam á hjólum og höfðum það gott.
Þessa vikuna hef ég lagt kapp við að klára hitt og þetta í vinnunni fyrir fríið. Mér tókst að klára nánast allt fyrir utan tvær krufningaskýrslur sem fengu að bíða. Í dag var kapphlaup við tímann. Ég kláraði að skera sýnin á þremur klukkutímum og fór svo milli sérfræðinganna með smásjárgler til að klára hitt og þetta. Reglulega er gert frammistöðumat. Eitt slíkt var gert í dag og var sérlega jákvætt - gat ég ekki verið annað en hæstánægður. Ég hef verið duglegur að kría út námskeið sem þeir hafa verið tilbúnir að samþykkja og borga. Er ánægður með Alkmaar.
Fylgist vel með fréttum á Íslandi, meira að segja betur en þegar ég var á Íslandi. Alltaf verður málið ljósara, í stórum mjög dráttum varð einkavæðing á almenningseigum (sjávarútvegur og bankar) þar sem fram fór skuldsetning sem síðan lendir á almenningi. Að baki þessu bjó fyrst og fremst græðgi.
Koma svo, gott veður á Íslandi!Í Amsturdammihttp://www.blogger.com/profile/15498099925631960885noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-3025303879606870405.post-12632652559676744132009-05-20T23:11:00.002+02:002009-05-21T01:02:10.518+02:00Léleg bankaþjónusta?Ég ákvað að skjótast í bankann í gær, komst með herkjum úr vinnunni og ætlaði að millifæra á erlendan reikning. Ég fór í stóran banka í miðbæ Alkmaar, gekk að afgreiðsluborðinu og sagðist vilja millifæra á erlendan reikning. Þá var mér bent á viðskiptavinatölvu úti í horni. Ætlast væri til þess að maður sæi um allt slíkt sjálfur. Reyndar var til önnur tölva en hún var biluð. Þannig að það var aðeins til ein tölva í öllum bankanum til afnota fyrir viðskiptavini - og hún var auðvitað upptekin í dágóða stund því að þar var einhver kona að borga reikningana sína. Þetta var fáránlegt. Á meðan ég beið fjölgaði svo kúnnum sem þurftu að nota tölvuna en á meðan sátu afgreiðslukerlingarnar þrjár fyrir aftan afgreiðsluborðið sitt en gátu ekkert gert til að hjálpa viðskiptavinum sem tíndust inn, þeir áttu bara að fara í röð við tölvuna. Svo þegar kom að mér þurfti ég auðvitað hjálp við þetta en síðan strandaði ég fljótt aftur. Þá var fólk fyrir aftan mig orðið pirrað á biðinni þannig að ég ákvað að hætta þessu og fór - án þess að klára millifærsluna. Það hefði verið mjög fljótlegt og einfalt að fá bara hjálp gjaldkera við þetta.
Hvað var í gangi? Jú, þróunin í bankaþjónustu hér í Hollandi er sú að fólk eigi að gera allt sjálft á netinu og gjaldkerar í bönkum eru nánast útdauð stétt. Hollendingarnir í vinnunni segja að þetta sé vandamál. Gamalt fólk sem ekki kann á tölvu lendir í vandræðum og það er vonlaust fyrir börnin að fara með klynk úr sparibauknum í bankann til að leggja inn á reikning. Þó að netþjónustan sé fín þá var ágætt að geta nýtt sér þjónustu gjaldkera af og til. Ég er á móti þessari þróun sem er greinilega einhvers konar sparnaðarráðstöfun með niðurskurði á þjónustu.Í Amsturdammihttp://www.blogger.com/profile/15498099925631960885noreply@blogger.com0