Skrapp til Berlínar um helgina. Tími til kominn að lyfta sér upp eftir ritgerðarskilin. Þangað var Ásgeir kominn einum degi á undan mér en við vorum hjá vinkonum Ásgeirs frá Svíþjóð. Það var gaman að koma aftur til Berlínar, var þar síðast fyrir um 5 árum. Þá var uppbygging mjög áberandi en virðist mun lengra komin núna. Við skoðuðum m.a. leifar af múrnum og þar í grenndinni voru leyfar af undirstöðvum höfuðstöðva Gestapo með áhugaverðri myndasýningu. Í borg þar sem minningarnar um það sem gerðist í seinni heimstyrjöldinni eru hvarvetna er skrítið að nýnasismi skuli vera til staðar. Til dæmis sá ég mann á gangi með labradorhundinn sinn og með nasistamerki á úlpuerminni. Þá sáum við nýnasistalega gaura hrópa úr bíl á Tyrkina sem voru margir í hverfinu þar sem við bjuggum. Annars er Berlín ódýr borg. Eftir því sem við fréttum er húsaleiga lægri en t.d. í Amsterdam og matur var greinilega ódýr, sérstaklega alls konar skyndibitastaðir sem voru út um allt. Fékk mér t.d. góðan kebab á 2,8 evrur.
Vinnan hefur gengið sinn vanagang. Síðasta vika var fremur róleg. Hef verið með nokkur áhugaverð sýni, t.d. smáfrumukrabbamein í þvagblöðru, amelanotic large and spindle cell melanoma, ristilkrabbamein með tap á MSI-6 (sem þýðir að viðkomandi er sennilegast með HNPCC), nasopharyngeal carcinoma og síðan enn eitt sýnið sem samanstóð af tungu, barka og hálseitlum.
Kv. Pétur.
you had me at hello!
ReplyDeleteHae! rakst a siduna tina. Bid ad heils honum asgeiri minum. Tar sem Eva er komin hingad til ad vera, ta hafid tid tvaer lesbiskar astaedur til ad heilsa upp á okkur aftur i MAdrid!
ReplyDeleteKoss og knus
Silja sveitta