Monday, November 3, 2008

Datt og missti af lestinni

Í morgun var ég tæpur á tíma og þegar ég var kominn upp á adallestarstöd hafdi ég 2-3 mínútur til ad komast í lestina, sem ég vissi ad væri hægt. Ég yrdi adeins ad vera fljótur. Ég hélt á tveimur plastpokum med möppum og pappír sem ég þurfti ad fara med í vinnuna. Ég hljóp eins og fætur togudu, inn gangana, fram hjá fólkinu, upp tröppurnar thar sem sé ég glitta í lestina og ... Í efsta þrepinu skreikadi mér einhvern veginn fótur og ég datt á hlaupunum. Ég hlammadist fram fyrir mig nidur á brautarpallinn, annar pokinn rifnadi og pappír dreifdist um stéttina. Í ofbodi reyni ég ad taka saman pappírinn og næ því mjög fljótlega en í þann mund heyrist flaut og dyrnar á lestinni lokast. Thetta var eiginlega eins og í bíómynd. Ég missti af lestinni.

2 comments:

  1. Anonymous6/11/08 13:38

    hlátur
    sliding doors syndrome
    ha ha ha
    hjálpaði þér einhver
    ég er enn að hlægja

    Gulli

    ReplyDelete
  2. Nei, ég fékk enga hjálp. Það voru mjög fáir viðstaddir. Ég sá einhvern horfa forviða á mig úr lestinni og svo var einhver kona rétt hjá mér sem gerði ekki neitt.

    ReplyDelete